headerphoto

2ja trolla miðjulóðið kemur frábærlega út!

Örfirisey Re 4 hefur að undanförnu stundað 2ja trolla veiðar með miðjulóði sérsmíðuðu í Hleragerðinni. Skemmst er frá því að segja að vel hefur tekist til. Skipstjóri Örfiriseyjar Trausti Egilsson segir að lóðið hafi reynst frábærlega og sé að auki allt að því viðhaldsfrítt enda eru hleraskórnir úr sérhertu stáli. Hér má sjá myndir af lóðinu.

 

Hleragerðin

Hleragerðin var stofnuð árið 1972, og starfaði fyrstu árin á Selvogsgötu, þar sem Hlera-og rúllugerðin var sem var stofnuð 1948. Fyrr á öldinni var þar svokallað Flosaport.
Í dag er Hleragerðin staðsett á grandanum, Fiskislóð 49-51, í vel útbúnu verkstæðishúsnæði. Þar starfa í dag 10 starfsmenn.

Hleragerðin framleiðir einnig hleranemafestingar, af ýmsum gerðum, þríhyrnur, fiskilínuhringi úr rústfríu, stáli og komprimeruðu öxulstáli, karakróka fyrir fiskikör, bobbingastoppara ásamt ýmsu öðru.
Hleragerðin tekur einnig að sér viðgerðir í skipum ásamt ýmsum öðrum verkþáttum, svo sem ál- og ryðfrísmíði.

Einnig tökum við að okkur viðgerðir á öllum öðrum hlerategundum

staff2

Taktu þann rauða með í túrinn

vegurHlerarnir okkar eru þekktir fyrir góða endingu.

 

Hlerarnir okkar:

HLG Klassík
Neptúnus
Júpiter
Júpiter hydro-wing
Mars