Hleragerðin
VIÐ höfum ávallt kappkostað að veita góða þjónustu og eigum því á lager hluti eins og: Hleraskó (sérhertir - ný tegund), slitbomsur, þyngingarplötur fyrir flot-og botnhlera, fóðringar fyrir toglás, toglása, bakstroffu- lása, rafsuðuvír og annað sem þarf fyrir viðhald á toghlerum.
Af öðru sem við framleiðum má ma. nefna tilbúna kengir fyrir mismunandi álag með leiðbeiningum um uppsetningu og slitþol. Á þennan hátt stuðlar Hleragerðin að auknu öryggi við hífibúnað um borð í skipum. Hleragerðin framleiðir einnig hleranemafestingar, af ýmsum gerðum, þríhyrnur, fiskilínuhringi úr rústfríu, stáli og komprimeruðu öxulstáli, karakróka fyrir fiskikör, bobbingastoppara ásamt ýmsu öðru.








